Gagnagæði

Gögnin, sem sýnd eru á þessari vefsíðu, í gegnum veftilkynningarnar og önnur gagnaúttök eru send rafrænt til EudraVigilance Veterinary af stjórnvöldum á sviði lyfjaeftirlits og handhöfum markaðsleyfis (lyfjafyrirtæki) í EES. Stofnunin hefur takmarkaða stjórn á ítarleika og nákvæmni upplýsinganna sem eru til staðar.
Upplýsingarnar í EudraVigilance breytast daglega og fjöldi einstakra mála getur aukist eða minnkað. Því er mögulegt að upplýsingarnar, sem birtar eru á vefsíðunni í gegnum veftilkynningarnar, kunni að breytast með tímanum.
Fækkun í fjölda einstakra mála sem koma fram í veftilkynningu má útskýra með eftirfarandi meginástæðum:

  • eftirfylgniskýrsla um fyrirliggjandi einstakt mál berst þar sem tilkynningu um lyf, virkt efni, eða meintar aukaverkanir er breytt af tilkynnandanum, á grundvelli nýrra upplýsinga;
  • tilkynning er send inn af fleiri en einum tilkynnanda (t.d. eiganda dýrs og dýralækni); við gæðaeftirlit finnast þessar tvær tilkynningar og er þeim steypt saman í eina tilkynningu;
  • tilkynning er ógild (fjarlægð) að beiðni tilkynnandans, venjulega vegna þess að tilkynningin var ekki rétt.
 EMA
EudraVigilance