Hvernig á að tilkynna grun um meintilvik

Ef þú eða dýr þitt (dýr þín) upplifir aukaverkun eftir notkun dýralyfs, eða ef þig grunar að þú eða dýr þitt sé að upplifa slíka aukaverkun, ættir þú að leita ráða hjá heilbrigðisstarfsmanni á sviði dýralækninga, sem mun tilkynna atvikið.

Dýraeigendur geta einnig tilkynnt grunuð meintilvik beint með ýmsum hætti, svo sem með rafrænum tilkynningareyðublöðum hjá innlendum lyfjaeftirlitsyfirvöldum eða símleiðis Vinsamlegast hafið samband við viðeigandi yfirvald af lista yfir innlend lyfjaeftirlitsyfirvöld á sviði dýraheilbrigðis á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) til að fá upplýsingar um hvernig tilkynna skuli um meintilvik sem grunur leikur á, sem og eftirfarandi stuttar leiðbeiningar. Einnig er hægt að tilkynna grunuð meintilvik til fyrirtækisins sem ber ábyrgð á dýralyfinu (hér á eftir nefndur markaðsleyfishafi).

Lyfjastofnun Evrópu (EMA) getur hvorki tekið við né unnið úr tilkynningum um aukaverkanir beint frá dýraeigendum eða heilbrigðisstarfsfólki á sviði dýralækninga. Lyfjastofnun Evrópu er heldur ekki í aðstöðu til að veita læknisfræðilega ráðgjöf eða ræða hvort þau meintilvik sem hafa komið fram séu af völdum tiltekins dýralyfs.

 EMA
EudraVigilance